Ríkisverðbréf
RIKB stendur fyrir óverðtryggð ríkisbréf, RIKS stendur fyrir verðtryggð ríkisbréf og RIKV er auðkenni ríkisvíxla. Tölurnar standa fyrir gjalddaga viðkomandi flokks afturábak þannig að RIKS 21 0414 þýðir verðtryggður ríkisbréfaflokkur á gjalddaga 14. apr. 2021. Lánamál ríkisins tryggja söluhæfni og markaðsmyndun á markflokkum með samningi um viðskiptavakt á flokkunum á eftirmarkaði. Í því felst m.a. að viðskiptavakar eru skuldbundnir að leggja fram tilboð í flokkanna í NASDAQ OMX Norrænu Kauphöllina Íslandi og endurnýja þau innan tiltekins tíma. Þannig geta kaupendur og seljendur ávallt gengið að því sem vísu að til sé verð í þessi bréf þ.e. ávallt er lifandi markaður fyrir helstu flokka ríkisverðbréfa.